Námskeið

24. janúar

Leiklistarnámskeið fyrir 
unglinga og grunndeild.
Hefst þriðjud. 24. jan.
kl. 17.
Verður í 3 skipti. 

24. janúar

Ítölskunámskeið 
fyrir framhaldsnemendur.
5 vikna námskeið hefst
24. janúar verður 2 x í viku.kl. 17.30 - 19

Skráning hafin. 

1. febrúar

Námskeið í Alexandertækni.
Umsjón: Sverrir Guðjónss.
Hefst kl. 19.30 
Verð: 2000 kr.

16. janúar

Masterclass með
Normu Enns
á tíma ljóðadeildar kl. 17 

Öllum velkomið að hlusta.

Söngskóli Sigurðar Demetz var stofnaður árið 2006 en starfaði áður sem Nýi söngskólinn "Hjartansmál". 

Skólinn var stofnaður undir forystu Guðbjargar Sigurjónsdóttur.

 

Verndari skólans frá upphafi var Sigurður Demetz, söngvari og söngkennari.
Demetz kenndi nemendum við skólann á meðan hann hafði heilsu til og fylgdist grannt með öllu sem fram fór innan skólans.

 

Sigurður lést 7 april 2006 á húkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík.

Sú vinátta, leiðsögn, hvatning og kennsla sem hann veitti alla tíð af miklu örlæti er  ómetanleg.

Nafni skólans var breytt í “Söngskóli Sigurðar Demetz” til minningar um Demetz og þakklæti fyrir það mikla starf sem hann vann í þágu sönglistar á Íslandi í 55 ár.

 

Skólinn starfar samkvæmt lögum um tónlistarskóla og kennir eftir námsskrá útgefinni af Menntamálaráðuneytinu árið 2002.

Skólinn gerir þjónustusamning við Reykjavíkurborg sem greiðir laun kennara.

Rekstur skólans er greiddur með námsgjöldum.

 

Við skólann starfa 20 kennarar. Auk þess býður skólinn uppá gestakennara og ýmis námskeið á hverjum vetri.

 

Óperudeild skólans hefur verið starfandi frá 2001 og Kór skólans frá 2007.

 

Skólastjóri skólans er: Guðbjörg Sigurjónsdóttir.

 

Stjórn skólans skipa.

Gunnar Guðbjörnsson, söngvari.

Guðbjörg Sigurjónsdóttir, skólastjóri

Sævar Kristinsson, rekstrarstjóri.