Námskeið

24. janúar

Leiklistarnámskeið fyrir 
unglinga og grunndeild.
Hefst þriðjud. 24. jan.
kl. 17.
Verður í 3 skipti. 

24. janúar

Ítölskunámskeið 
fyrir framhaldsnemendur.
5 vikna námskeið hefst
24. janúar verður 2 x í viku.kl. 17.30 - 19

Skráning hafin. 

1. febrúar

Námskeið í Alexandertækni.
Umsjón: Sverrir Guðjónss.
Hefst kl. 19.30 
Verð: 2000 kr.

16. janúar

Masterclass með
Normu Enns
á tíma ljóðadeildar kl. 17 

Öllum velkomið að hlusta.

 

 

Uppvaxtarár.

Sigurður fæddist 11. október 1912 í Ortisei í Gardenadal í Suður-Týrol.

 Hann byrjaði snemma að syngja og eru til myndir af hans fyrsta konsert 2 ára gömlum.  

 

 

L prim Konzert 1914

       Program

Kommt ein Vogel geflogen...

Fuchs du hast die Gans gestohlen...

Es klappert die Mühle...

Ihr Kinlein kommet...

 

 

 

Söngnám

Hann sýndi snemma afburðasönggáfu. Hann sótti nám til próf. Pintornos í Mílanó.  Há og kröftug tenorrödd hans ásamt prýðilegri leikgáfu opnuðu honum dyr að ýmsum frægustu óperuhúsum heims.

 

Pintorno var ekki söngvari en mikill tónlistarmaður.

 

 

 

Söngferill

Árið 1936 vann hann til verðlauna í söng og píanókeppni í Wien. Árið 1937, eftir þriggja og hálfs árs nám, var Demetz boðið að koma og syngja fyrir í Ríkisóperunni í Dresden. Þar hlustuðu á hann Karl Böhm, General Musik Director á þeim tíma og intendant Gottschalk. Honum var boðið 5 ára samningur. Prófessor Pintorni átti að fara með honum og halda áfram að þjálfa hann. Frumraunin átti að vera í Manon eftir Massenet með frægri söngkonu Maria Cebbotari þann 28 des. 1937. Rétt fyrir frumsýningu varð Demetz alvarlega veikur og lá lengi á sjúkrahúsi.

Í febrúar 1939 fer hann aftur heim og heldur áfram námi hjá prófessor Pintorni.  Árið 1940 er svo frumraun hans á sviði í La Traviata eftir Verdi með söngkonunni Mafalda Favero í Adria á Ítalíu. Árið 1942 er hann ráðinn af Tullio Serafin við Konunglegu óperuna í Róm. Árið 1943 syngur hann fyrir Karajan í Farnese höllinni í Róm. 

Karajan var á þessum tíma hljómsveitarstjóri í Aachen í Þýskalandi og sendir hann þangað að syngja fyrir. Þar undirritar hann samning til þriggja ára með fyrsta verkefni La Boheme eftir Puccini undir stjórn Karajan. Frumsýning átti að vera 28 september 1943 en í júni sama ár var gerð sprengjuárás á Aachen og eftir það loka öll óperuhús í Þýskalandi. Demetz fer aftur til Mílanó og er ráðinn hjá Ríkisútvarpi til stríðsloka.
Árin 1946 - 47 söng hann hér og þar eftir því sem tækifæri leyfðu eftir stríðið.

 

 

Árið 1948 - 1952 er hann ráðinn við Scala óperuna í Mílanó.

 

Hann syngur þar:

Ödipus Rex  efir Stravinsky.
The Rakes Progress eftir Stravinsky.
Prosperina e Lo Straniero
Die Meistersinger von Nürnberg eftir Wagner.
Tistan og Isolde eftir Wagner.

 

 Aðrar óperur sem Demetz söng í eru m.a.                                                            

La Traviata eftir Verdi
Rigoletto eftir Verdi
Il Trovatore eftir Verdi.
Ballo in Maschera eftir Verdi.
Otello eftir Verdi.
Lucia di Lammermoor eftir Donnizetti
Madame sans Géne eftir Giordano
Carmen eftir Bizet
Tosca eftir Puccini.
Madame Butterfly eftir Puccini.
Cavalleria Rusticana eftir Mascagni.
Hollendinginn fljúgandi eftir Wagner
Howantchina eftir Moussoursky
Incoronazione di Poppea eftir Montiverdi.
Boris Godunov eftir Mussorgsky
Lulu eftir Alban Berg.
Elektra eftir R. Strauss.
Salome eftir R. Strauss.

 

Komið til Íslands.

Demetz kom til Íslands 26 júlí 1955.

Tilviljun réði því að hann kom hingað eftir að hafa kynnst Svanhvíti Egilsdóttur söngkonu en hún hafði sótt söngtíma til hans og hvatt hann til að koma til Íslands.

Vinur hans Rino Castagnino hljómsveitarstjóri sem hafði verið hér að stjórna La Bohéme eftir Puccini í Þjóðleikhúsinu ráðlagði honum reyndar að fara ekki til Íslands því veður væru hér vond og allir með astma.

Eftir að hafa hlustað á Íslendinga tala sem lét í eyrum Demetz eins og þeir stæðu á öndinni í miðri setningu kom  honum til að hugsa að Íslendingum hlyti að láta illa að syngja.

 

 Raunin varð önnur og hófst hér ferill hans  í Reykjavík sem afburða söngkennari. Hann hóf kennslu 1 ágúst 1955 og þá í heimahúsi. Hann stofnaði svo eigin "Söng og óperuskóla" árið 1957 og starfrækti í Reykjavík í 12 ár.

Kenndi síðar við:

Tónlistarskóla Akureyrar í 13 ár.

Tónlistarskólann í Keflavík,

Tónlistarskólann í Mosfellsbæ.

Nýja tónlistarskólann í Reykjavík frá árinu 1982 – 1992

og við Nýja söngskólann “Hjartansmál”.

Hann hélt fjölda söngnámskeiða á Íslandi en fór einnig til Amsterdam með námskeið og tvisvar sinnum hélt hann námskeið í Mozarteum-tónlistarháskólanum í Vínarborg.

 

 

Söngnemendur hans eru fjölmargir og ekki nokkur leið að gera því skil en hér skulu taldir upp nokkrir af þeim sem flestir kannast við.

 

 

Kristján Jóhannsson óperusöngvari.

Jón Sigurbjörnsson söngvari og leikari.             

Guðmundur Guðjónsson söngvari og leikari.

Sigurveig Hjaltested söngskona.

Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari.

 Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvari.

Kolbein Ketilsson óperusöngvari.

Guðjón Óskarsson óperusöngvari.

Jóhann Smári Sævarsson óperusöngvari.

Jóhanna Linnet söngskona.

Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.

 

Kórarnir sem Demetz stjórnarði, raddþjálfaði og stofnaði eru ófáir. Fljótlega eftir að hann kom til Akureyrar stofnaði hann 24 MA félaga sem varð þekktur sönghópur. Þau eru enn að koma saman og starfa.

Demetz samdi sjálfur nokkur lög og eru tvö þeirra þekkt hér þ.e.

Nina- Nana sprottið af retórómanskri hefð og Gute Nacht.  

 

 

Á sumrin starfaði Demetz á síld fór til sjós sem kokkur en var lengst við fararstjórn útlendinga um landið og þekkti hann Ísland betur en margir Íslendingar. 

Einnig fór hann með marga hópa um heimahaga sína á Ítalíu, og áfáa kóra sem  héldu tónleika í konserthúsinu í Ortisei.

Árið 1992 fóru kennarar Nýja tónlistarskólans með fríðu föruneyti og héldu tónleika í Ortisei til heiðurs
Sigurði Demetz 80 ára.

Árið 2002 fór stór hópur með Karlakór Kjalnesinga í fararbroddi til Ortisei og hélt tónleika til heiður Demetz 90 ára.  Þangað komu sem gestir Diddú og Kristján Jóhannsson og sungu fyrir hann alveg óvænt og varð það honum alveg ógleymanlegt. Einnig var með í þeirri ferð Guðrún Gunnarsdóttir og var gerður um þessa ferð sjónvarpsmynd.

Þá samdi hann barnasögu sem heitir “Flik og Flok” og hefur verið þýdd og gefin út á þýsku og hollensku. Búið er að þýða hana á íslensku en ekki gefa hana út.