Sigríður Aðalsteinsdóttir

Sigríður Aðalsteinsdóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1995. Aðalkennarar hennar þar voru Elísabet F. Eiríksdóttir og Þuríður Pálsdóttir. Haustið 1995 hóf hún nám við óperudeild Tónlistarskólans í Vínarborg og ári síðar við óperudeild Tónlistarháskólans í Vínarborg. Þar stundaði hún söngnám hjá Helene Karusso. Hún lauk námi frá Tónlistarháskólanum árið 2000 með hæstu einkunn. Frá 1998-2001 stundaði hún nám í ljóða- og óratoríudeild sama skóla og naut þar leiðsagnar prófessors Charles Spencer.
Sigríður hóf söngferil sinn í Þjóðaróperunni í Vínarborg árið 1997. Til ársins 2002 söng hún ýmis hlutverk við húsið, m.a. þriðju dömu í Töfraflautunni, Fjodor í Boris Godunov og Mercedes í Carmen. Á Íslandi hefur Sigríður sungið hlutverk Zitu í Gianni Schicci með Norðurópi og hlutverk þriðju dömu í Töfraflautunni, Marcellinu í Brúðkaupi Figarós, Mother Goose í The Rake’s Progress og í Óperuperlum hjá Íslensku óperunni haustið.
Sigríður hefur haldið fjölda ljóðatónleika og komið fram sem einsöngvari víða með kórum og hljómsveitum. M.a. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníhljómsveit Íslands.
Sigríður kennir einsöng við Söngskóla Sigurðar Demetz í Reykjavík.

