Á döfinni

25. maí

Skólaslit í sal skólans kl. 18

29. maí

Braggar og ballkjólar
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

24. maí

Vortónleikar skólans
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

23. maí

Tónleikar ljóðadeildar
kl. 20 í sal skólans.

 

27. apríl og 28. apríl

Sýningar á La Sonnambula og I Puritani í Tjarnarbíói.
Sýningar hefjast kl. 20.00 bæði kvöldin.

2. apríl

Burfararprófstónleikar Svanhvítar Sigurðardóttur
mezzó sópran, í Kirkjuhvoli Garðabæ kl. 20

 

26. mars

Roberto Manfredini fyrrverandi æfingastjóri
hjá arenunni í Veróna og Francesca Siciliani
leikstjóri koma í Söngskóla Sigurðar Demetz.
Þau ætla að vinna með nemendum í óperudeild
fram að sýningu í lok apríl.

 

24. janúar

Leiklistarnámskeið fyrir 
unglinga og grunndeild.
Hefst þriðjud. 24. jan.
kl. 17.
Verður í 3 skipti. 

24. janúar

Ítölskunámskeið 
fyrir framhaldsnemendur.
5 vikna námskeið hefst
24. janúar verður 2 x í viku.kl. 17.30 - 19

Skráning hafin. 

1. febrúar

Námskeið í Alexandertækni.
Umsjón: Sverrir Guðjónss.
Hefst kl. 19.30 
Verð: 2000 kr.

16. janúar

Masterclass með
Normu Enns
á tíma ljóðadeildar kl. 17 

Öllum velkomið að hlusta.

Sigrún Hjálmtýsdóttir

Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Diddú eins og margir kalla hana er sópran og nam söng hér heima og við Guildhall School of Music and Drama í London. Þaðan lauk hún prófum í einsöng og kennslufræðum og fór síðan í framhaldsnám á Ítalíu. Á námsferli sínum vann hún til fjölda viðurkenninga og verðlauna. 

Sigrún hefur sungið fjölda hlutverka hjá Íslensku óperunni, í Carmina Burana, Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós, Gildu í Rigoletto, Næturdrottninguna og Papagenu í Töfraflautunni, Luciu í Lucia di Lammermoor, Violettu í La traviata, Adinu í Ástardrykknum og Rósalindu í Leðurblökunni. Hún söng í Niflungahringnum og Olympiu í Ævintýrum Hoffmanns, sem voru samstarfsverkefni Óperunnar og Þjóðleikhússins. Árið 1992 söng hún Gildu í Rigoletto við óperuna í Gautaborg. 

Sigrún hefur leikið og sungið í sjónvarpsleikritum,  s.s. Brekkukotsannál og Silfurtunglinu og kvikmyndunum Karlakórnum Heklu og Bíódögum. Hún hefur sungið inn á fjölda hljómdiska og margoft komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og sungið með kórum bæði kirkjuleg og veraldleg verk. Sigrúnu hefur verið boðið til tónleikahalds víðsvegar um Evrópu, í Japan og í Bandaríkjunum. Henni var veitt Hin íslenska fálkaorða árið 1995. Sigrún á sæti í listráði Íslensku óperunnar.