Nýtt á Íslandi:
Píanóleikur með söngvurum - Ljóðameðleikur
Aðalkennari: Gerrit Schuil píanóleikari og hljómsveitarstjóri
Forkröfur námsins eru:
*tæknileg geta (a.m.k. framhaldspróf í píanóleik og reynsla af söng)
*þekking á þeim tungumálum sem sungið er á (þýsku, ítölsku, frönsku, ensku)
*næmi fyrir ljóði og lagi (a.m.k. grundvallarþekking á helstu verkum ljóðabókmenntanna)
Nemendur í þessu námi sækja einkatíma hjá Gerrit, bæði einir og með söngvurum/söngnemum. Auk þess vinna þeir utan tímanna og þá með starfandi söngvurum, sem þeim býðst að fara með í tímana til Gerrits.
Farið verður m.a. í helstu ljóðaflokka tónbókmenntanna auk fjölda annarra verkefna sem söngvarar og nemendur vinna að hverju sinni.
Ljóðadeild skólans er undir stjórn Gerrit Schuil.
Meðleikaranemendur vinna með ljóðadeild skólans sem er 2 klst. á viku. Í ljóðadeild koma saman söngnemendur skólans sem eru í framhaldsnámi og flytja þeir verk sem þeir hafa unnið að ásamt kennurum sínum. Meðleikaranemendur leika undir og fá einnig leiðsögn. Fjöldi nemenda í ljóðadeild er u.þ.b. 20 manns.
Námi í ljóðameðleik lýkur með próftónleikum og fá nemendur prófskírteini um að hafa stundað þetta nám.
Nánari lýsing á náminu - Píanóleikur með söngvurum
Námið er alhliða kynning á listinni að spila með söngvurum.
Viðfangsefnin eru víðtæk eins og t.d.
* Hvað þarf til að vera meðleikari
* Hverjar eru helstu skyldur meðleikarans
* Hvernig getur meðleikari hjálpað söngvaranum
* Hvað þarf meðleikari að gera til að forðast að trufla söngvarann
* Mikilvægi tengsla milli texta og tónlistar
Kafað verður djúpt í sönglistina, þar með talið alla helstu ljóðaflokka stóru meistaranna þ.e. Schubert, Schumann, Brahms, Wolf og fleiri.
Það sem gefur þessu námi sérstakt vægi er að það fer fram í söngskóla, með fjölda söngnema að vinna með en það eykur verkefnaval.
Mælt er með að píanóleikarar vinni einnig með starfandi söngvurum til að verkefnaval verði sem fjölbreyttast.
Ætlast er til að nemendur vinni reglulega með söngvurum og vinni markvisst að verkefnum þeirra og mælst er til þess að sú vinna skili sér með tónleikahaldi með viðkomandi söngvara á námstímanum.
Nemendur munu oft taka þátt í söngnámskeiðum í skólanum til að fylgja eftir fyrirlestrum og öðru námsefni ásamt því að taka þátt sem meðleikarar.


