Hulda Guðrún

Nafn: Hulda Guðrún Geirsdóttir

Starfsferill:

Hulda Guðrún Geirsdóttir lauk námi frá píanó- og söngdeild Tónlistarskólans í Reykjavík árið 1989, þar sem aðalkennarar hennar voru Arndís Steingrímsdóttir og Elísabet Erlingsdóttir og stundaði síðan framhaldsnám við Richard-Strauß Konservatorium í München. Á námstímanum fékk hún stöðu við Staatstheater am Gärtnerplatz í München. 1992 var hún ráðin einsöngvari við sönghóp Feliciu Weathers og söng með henni á tónleikum víðsvegar um Þýskaland.

Hulda Guðrún hefur haldið fjölda ljóða- og óperutónleika hér heima og í Þýskalandi, komið fram á tónlistarhátíðum og sungið einsöngshlutverk í óperum og óratoríum með ýmsum kórum og hljómsveitum s.s. Südbayrische Philharmonie, Münchener Kammerensemble, Söngsveitinni Fílharmóníu og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, auk einsöngs við kirkjulegar athafnir. Hún hefur og stundað söngkennslu, fyrst sem aðstoðarkennari Ursulu Hirschberger við Richard-Strauß Konservatorium í München og síðar hér heima, hefur haldið söngnámskeið á landsbyggðinni, auk kórþjálfunar m.a. hjá Söngsveitinni Fílharmóníu.

Gerðar hafa verið útvarpsupptökur með flutningi hennar á íslenskum sönglögum, einkum eftir íslensk samtímatónskáld. Stundar söng- og píanókennslu við Nýja söngskólann auk þess að raddþjálfa hina ýmsu kóra.

 Til baka


Vefhönnun: Anna
© 2000 Nýi söngskólinn "Hjartansmál"