Gunnar

Nafn: Gunnar Guðbjörnsson
 
Gunnar var nemandi Sigurðar Demetz við Nýja tónlistarskólann og útskrifaðist þaðan 1987. Sama ár fór hann til London og var þar í óperustúdíói í eitt ár en eftir það hefur hann verið fastráðinn við óperuhúsin í Wiebaden, Lyon og Deutche Staatsoper í Berlín þar sem hann hefur verið undanfarin þrjú ár.

Gunnar hefur sungið í fjölmörgum verkefnum, allt frá óratoríum til Wagnerópera en í vor birti blaðið Grammophone mjög lofsamlega gagnrýni um frammistöðu Gunnars í upptöku á óperunni Tannhauser undir stjórn Daniels Barenboim.
 
Gunnar Guðbjörnsson er starfandi óperusöngvari en hefur nú búsetu á Íslandi.  Hann getur tekið að sér fáeina nemendur en æskilegt er að þeir séu komnir það vel  á veg í söngnáminu að þeir geti misst úr viku og kannski tvær þegar að hann er erlendis að syngja en tækju svo fleiri tíma á viku inn á milli.
 
Við fögnum því að hafa fengið svo reyndan söngvara til liðs við skólann.

 Til baka


Vefhönnun: Anna
© 2000 Nýi söngskólinn "Hjartansmál"