Jón Sigurðsson

Jón Sigurðsson lauk kennara- og burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og í Bandaríkjunum. Hann lauk meistaraprófi í píanóleik við einleikaradeild Ríkisháskólans í Arizona. Hann hefur einnig lokið meðleikaranámi frá Söngskóla Sigurðar Demetz. Helstu kennarar Jóns hafa verið Helga Laxness, Halldór Haraldsson, Erika Haase, Gerrit Schuil og Caio Pagano. Einnig hefur hann tekið þátt í opnum kennslustundum hjá Ruth Slenczynska, Edith-Picht Axenfeld og Roger Woodward. Jón hefur haldið einleikstónleika reglulega og komið fram með fjölmörgum hljóðfæraleikurum og söngvurum. Árið 2005 kom út geisladiskur með leik Jóns þar sem er að finna meðal annars verk eftir Scriabin og Barber. Á næstu vikum er væntanlegur diskur með verkum eftir Schumann, Mozart og Strauss.

