Á döfinni

25. maí

Skólaslit í sal skólans kl. 18

29. maí

Braggar og ballkjólar
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

24. maí

Vortónleikar skólans
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

23. maí

Tónleikar ljóðadeildar
kl. 20 í sal skólans.

 

27. apríl og 28. apríl

Sýningar á La Sonnambula og I Puritani í Tjarnarbíói.
Sýningar hefjast kl. 20.00 bæði kvöldin.

2. apríl

Burfararprófstónleikar Svanhvítar Sigurðardóttur
mezzó sópran, í Kirkjuhvoli Garðabæ kl. 20

 

26. mars

Roberto Manfredini fyrrverandi æfingastjóri
hjá arenunni í Veróna og Francesca Siciliani
leikstjóri koma í Söngskóla Sigurðar Demetz.
Þau ætla að vinna með nemendum í óperudeild
fram að sýningu í lok apríl.

 

24. janúar

Leiklistarnámskeið fyrir 
unglinga og grunndeild.
Hefst þriðjud. 24. jan.
kl. 17.
Verður í 3 skipti. 

24. janúar

Ítölskunámskeið 
fyrir framhaldsnemendur.
5 vikna námskeið hefst
24. janúar verður 2 x í viku.kl. 17.30 - 19

Skráning hafin. 

1. febrúar

Námskeið í Alexandertækni.
Umsjón: Sverrir Guðjónss.
Hefst kl. 19.30 
Verð: 2000 kr.

16. janúar

Masterclass með
Normu Enns
á tíma ljóðadeildar kl. 17 

Öllum velkomið að hlusta.

Helgi Már Hannesson

Fæddur 22. Janúar 1980.

Nám: Hóf nám í Tónlistarskóla Keflavíkur 6ára að aldri á blokkflautu og tónfræði fyrstu tvö árin undir umsjón Siguróla Geirssonar. 8 ára gamall hóf Helgi Már klassískt píanónám hjá Steinari Guðmundssyni til 12 ára aldurs, skipti svo yfir til Guðmundar Magnússonar til 14ára aldurs. Sama ár lá svo leiðin til Reykjavíkur í Tónskóla Sigursveins D Kristinssonar og hóf hann þar áframhaldandi klassísku píanónámi undir handleiðslu Önnu Málfríðar Sigurðardóttur og hljómfræði hjá Hróðmari Sigurbjörnssyni . Og kláraði þaðan 8.stigs prófið. Haustið 2003 ákvað Helgi svo að auka við þekkinguna sína í píanóleik og hóf nám í djazz og blús þar sem hann hafði nú til þessa eingöngu lært klassískan píanóleik, og urðu Bandaríkin fyrir valinu, nánar tiltekið í Los Angeles við The Musicians Institute. Lauk þaðan Associate of Arts Degree in Commercial Music, Keyboard Performance, vorið 2005.

Helgi hefur samhliða fullu námi stundað ýmisskonar félagsstarf í þágu tónlistarinnar og leikið mjög svo víðsvegar, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum með djazzsveit og kórum frá Íslandi. 1997 hóf Helgi starf sem undirleikari í Léttsveit Tónlistarskólans Keflavíkur undir stjórn Karenar Sturlaugssonar og hefur hljómsveitin ferðast vítt og breitt hér á landi og erlendis, má þar nefna Boston, Bermúda, Portland og Spán. Hérlendis hefur sveitin komið margoft fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og á hinum ýmsum tónleikum á Suðurnesjum. Helgi hefur góða reynslu sem undirleikari í ýmsum kórum. Hefur hann starfað með Kvennakór Keflavíkur og Regnbogakórnum undir stjórn Esterar Helgu Guðmundsdóttur, hefur Regnbogakórinn komið fram í Búdapest og Szetendre í Ungverjalandi. Eldeyjarkórnum undir stjórn Alexöndru Pitak og hefur sá kór ferðast hringinn í kringum landið. Lék svo Helgi í þrjá vetur í Sunnudagaskóla Keflavíkurkirkju.

Er Helgi hóf nám erlendis í Bandaríkjunum má segja að við hafi tekið mjög annasamur tími bæði við nám og störf sem undirleikari. Hefur Helgi leikið með hinum ýmsum skólahljómsveitum og einstaklingum, hátt í 40 manns við hin ýmsu tækifæri bæði innan skólans og utan. Ferðaðist hann meðal annars með worldjazz-fusion hljómsveit til Portland, Oregon og hélt þar tónleika og í Los Angeles. Þó hefur hann mestmegnis starfað með söngnemendum í söngdeildinni við skólann. Eitt helsta má þar nefna mjög svo náið samtstarf með ungri og mjög svo hæfileikaríkri listakonu á sviði tónlistar og leiklistar. Á hún gífurlega glæstan frama framundan. Q,orianka Kilcher heitir hún og er aðeins 15ára gömul að aldri og hefur hún verið bæði við nám í skólanum og einkatímum hjá Seth Riggs, sem hefur þjálfað Stevie Wonder síðan Stevie var 19ára gamall. Og Helgi hefur einnig verið í mjög góðu samstarfi með Robin Randall sem er jafnframt söngkennari við skólann. Er hún einn af höfundum þemalagsins í Baywatch þáttunum, ásamt að hafa samið fyrir NBC sjónvarpsstöðina fyrir raunveruleikaþáttinn Starting Over, og hafa þau Helgi einmitt sent inn efni sem nefnist tv ques fyrir næstu þáttaröð sem sýnd verður í haust á NBC. Helgi notast mjög svo mikið við tónlistarforritið Logic fyrir Macintosh.