Á döfinni

25. maí

Skólaslit í sal skólans kl. 18

29. maí

Braggar og ballkjólar
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

24. maí

Vortónleikar skólans
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

23. maí

Tónleikar ljóðadeildar
kl. 20 í sal skólans.

 

27. apríl og 28. apríl

Sýningar á La Sonnambula og I Puritani í Tjarnarbíói.
Sýningar hefjast kl. 20.00 bæði kvöldin.

2. apríl

Burfararprófstónleikar Svanhvítar Sigurðardóttur
mezzó sópran, í Kirkjuhvoli Garðabæ kl. 20

 

26. mars

Roberto Manfredini fyrrverandi æfingastjóri
hjá arenunni í Veróna og Francesca Siciliani
leikstjóri koma í Söngskóla Sigurðar Demetz.
Þau ætla að vinna með nemendum í óperudeild
fram að sýningu í lok apríl.

 

24. janúar

Leiklistarnámskeið fyrir 
unglinga og grunndeild.
Hefst þriðjud. 24. jan.
kl. 17.
Verður í 3 skipti. 

24. janúar

Ítölskunámskeið 
fyrir framhaldsnemendur.
5 vikna námskeið hefst
24. janúar verður 2 x í viku.kl. 17.30 - 19

Skráning hafin. 

1. febrúar

Námskeið í Alexandertækni.
Umsjón: Sverrir Guðjónss.
Hefst kl. 19.30 
Verð: 2000 kr.

16. janúar

Masterclass með
Normu Enns
á tíma ljóðadeildar kl. 17 

Öllum velkomið að hlusta.

 

Hallveig Rúnarsdóttir

Hallveig Rúnarsdóttir hóf söngnám hjá Sigurði Demetz árið 1991. Hún lauk 8. stigi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Rutar L. Magnússon árið 1998. Það sama ár hóf hún nám  hjá Theresu E. Goble við Guildhall School of Music and Drama í London og útskrifaðist þaðan með láði sumarið 2001.

Hallveig söng hlutverk Fiordiligi í óperunni Così fan Tutte eftir W. A. Mozart hjá Óperustúdíói Austurlands sumarið 2002 og söng hlutverk Jane í Happy End eftir Kurt Weill hjá Sumaróperu Reykjavíkur 2004 . Þá tók hún þátt í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Sweeney Todd eftir Stephen Sondheim sama ár. Í janúar síðastliðnum söng Hallveig hlutverk Serviliu í konsertuppfærslu Sinfóníuhljómsveitar Íslands á La Clemenza di Tito eftir W. A. Mozart. Einnig söng Hallveig Kantötu nr 51, Jauchzet Gott in Allen Landen eftir J. S. Bach á aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar fyrr í vetur. Hallveig hefur einnig komið fram með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, kammersveitinni Aldavinum og kammerhópnum Caput.

Hallveig hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim, sungið einsöng í kirkjulegum verkum t.d. í Hallgrímskirkju, Áskirkju og Vídalínskirkju auk þess að koma fram við fjöldamörg tækifæri hér á landi.  

Hallveig hefur sérstaklega verið virk í flutningi nýrrar tónlistar og hefur frumflutt mörg ný íslensk verk, t.d. á Listahátíð í Reykjavík og á Sumartónleikum í Skálholti, auk upptaka fyrir útvarp.

Hallveig hefur haldið fjölda einsöngstónleika á Íslandi undanfarin ár þar sem hún hefur lagt áherslu á ljóðasöng. Í haust mun fyrsti geisladiskur hennar koma út hjá útgáfufyrirtækinu Smekkleysu en hann mun innihalda nýja íslenska söngtónlist.