Gunnar Guðbjörnsson
Gunnar var nemandi Sigurðar Demetz við Nýja tónlistarskólann og útskrifaðist þaðan 1987. Sama ár fór hann til London og var þar í óperustúdíói í eitt ár en eftir það hefur hann verið fastráðinn við óperuhúsin í Wiebaden, Lyon og Deutche Staatsoper í Berlín þar sem hann hefur verið undanfarin þrjú ár.
Gunnar hefur sungið í fjölmörgum verkefnum, allt frá óratoríum til Wagnerópera en í vor birti blaðið Grammophone mjög lofsamlega gagnrýni um frammistöðu Gunnars í upptöku á óperunni Tannhauser undir stjórn Daniels Barenboim.

