Bergþór Pálsson

Bergþór Pálsson baritón stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Indiana University í Bloomington þar sem hann lauk B.M.- og mastersnámi. Árið 1996 lauk hann leiklistarnámi frá Drama Studio London.
Að loknu námi starfaði Bergþór um nokkurra ára skeið í Þýskalandi, en síðan 1991 hefur hann að mestu starfað á Íslandi. Af ótal óperuhlutverkum hans má nefna t.d. titilhlutverkið í Évgéní Ónégín eftir Tsjækofskí, titilhlutverkið í Don Giovanni, Almavíva greifa í Brúðkaupi Fígarós og Papagenó í Töfraflautunni eftir Mozart, Malatesta í Don Pasquale og Enrico í Lucìa di Lammermoor eftir Donizetti, Germont í La Traviata eftir Verdi, Sharpless í Madama Butterfly og Marcello í La Bohème eftir Puccini.
Bergþór hefur haldið fjölda ljóðatónleika, sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur, einnig einsöngshlutverk í kórverkum, svo sem í Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratóríu Bachs, Sköpuninni og Árstíðunum eftir Haydn, Sálumessu Mozarts, Messíasi Händels og Elía Mendelssohns.
Bergþór hefur tekið þátt í frumflutningi á verkum eftir íslensk tónskáld. Af þeim má nefna óperurnar Galdra-Loft eftir Jón Ásgeirsson, Óhræsið eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Kalla og sælgætisgerðina eftir Hjálmar Ragnarsson, hljómsveitarverkið Tímann og vatnið eftir Atla Heimi Sveinsson og fjölmörg önnur verk af ýmsu tagi.

