Á döfinni

25. maí

Skólaslit í sal skólans kl. 18

29. maí

Braggar og ballkjólar
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

24. maí

Vortónleikar skólans
kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju.

23. maí

Tónleikar ljóðadeildar
kl. 20 í sal skólans.

 

27. apríl og 28. apríl

Sýningar á La Sonnambula og I Puritani í Tjarnarbíói.
Sýningar hefjast kl. 20.00 bæði kvöldin.

2. apríl

Burfararprófstónleikar Svanhvítar Sigurðardóttur
mezzó sópran, í Kirkjuhvoli Garðabæ kl. 20

 

26. mars

Roberto Manfredini fyrrverandi æfingastjóri
hjá arenunni í Veróna og Francesca Siciliani
leikstjóri koma í Söngskóla Sigurðar Demetz.
Þau ætla að vinna með nemendum í óperudeild
fram að sýningu í lok apríl.

 

24. janúar

Leiklistarnámskeið fyrir 
unglinga og grunndeild.
Hefst þriðjud. 24. jan.
kl. 17.
Verður í 3 skipti. 

24. janúar

Ítölskunámskeið 
fyrir framhaldsnemendur.
5 vikna námskeið hefst
24. janúar verður 2 x í viku.kl. 17.30 - 19

Skráning hafin. 

1. febrúar

Námskeið í Alexandertækni.
Umsjón: Sverrir Guðjónss.
Hefst kl. 19.30 
Verð: 2000 kr.

16. janúar

Masterclass með
Normu Enns
á tíma ljóðadeildar kl. 17 

Öllum velkomið að hlusta.

Auður Gunnarsdóttir

Auður Gunnarsdóttir er fædd í Reykjavík.  Hún lauk 8. stigi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1991 þar sem kennari hennar var Ólöf Kolbrún Harðardóttir.  Árið 1992 hélt hún til Stuttgart þar sem hún stundaði framhaldsnám við tónlistarháskólann og lauk árið 1997 prófi frá óperu- ljóða og einsöngvaradeild.

Kennarar hennar þar voru Prof.Luisa Bosabalian og Carl Davis.  Haustið 1999 fékk Auður samning við óperuna í Würzburg þar sem hún söng hin ýmsu hlutverk, svo sem Rosalindu í Leðurblökunni, Antóníu í Ævintýrum Hoffmanns, Pamínu í Töfraflautunni, Micaälu í Carmen, Donnu Elviru í Don Giovanni, Blance í Samtal karmellítanna, Annínu í Nótt í Feneyjum, Luísu í Unga lordinum o.m.fl. Auk þess hefur Auður komið fram í óperuhúsunum í Mannheim, Heidelberg, Bielefeld og Hannover.  Auður hefur haldið fjölda ljóðatónleika hér heima og erlendis.

Á námsárunum sótti Auður námskeið hjá Renötu Scotto, Brigitte Fassbaender og Hermann Prey.  Auður hefur hlotið fjölda styrkja, m.a. listamannalaun ríkisins og styrk úr Tónlistarsjóði. Árið 1999 kom út geisladiskurinn Íslenskir söngvar þar sem Jónas Ingimundarson leikur á píanóið, en þau hafa unnið mikið saman, tekið upp tónlist íslenskra tónskálda og oft komið fram á Tíbrár tónleikum Salarins. 

Í Íslensku óperunni hefur Auður farið með hlutverk Mimiar í La Bohéme, Pamínu í Töfraflautunni, Greifynjunnar í Brúðkaupi Fígarós og Santuzzu í Cavaleria Rusticana.  Auður hefur einnig komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands.